Lýsing
Öxull, 1″, galv, holur m. kílspori, L=3250mm, 3mm efnisþykkt
1″ / 25,4mm er algengasti öxulsverleiki sem notaður er við iðnaðarhurðir. Notkunarsvið liggur sirka milli 0-200kg. Innan þess viðmiðs er holöxull nægilega sterkur og ódýrari en gegnheill. Yfir því viðmiði er æskilegt að nota 1″ gegnheilan öxul (sirka 200-400kg) eða 1-1/4″ gegnheilan öxul (sirka >400kg). Takið eftir að dýpt kílspora í holöxli og gegnheilum er ekki sú sama, og því ekki þægilegt að festa þá saman í öxulsamskeytaklemmu.
Framleiðandi: Flexiforce
Þvermál: 1″ / 25,4mm
Lengd: 3250mm.
Kílspor: 1/4″ / 6,35mm
Öxulkíll: 1/4″ x 3/8″ kíll notaður.
Efni: Holur stálöxull, sínkhúðaður
Þyngd: 1,73kg / metri – eða 5.62kg í heild.
Einnig fáanlegur sem gegnheill öxull:
Öxull, 1″, galv, gegnheill m. kílspori, L=6000mm
Stærð fyrir ofan: