Val á dragmótor

Dragmótorar eru yfirleitt notaðir við bílskúrs- og bílskýlishurðir og henta í mörgum tilvikum betur en öxulmótorar í slíkum aðstæðum. Notkunarsvið dragmótoranna sem við seljum takmarkast við sirka 150kg hurðarþyngd, 3,5m opnunarhæð og hámark 50-100 opnanir á dag (háð týpu). Hægt er að fá dýrari týpu fyrir þyngri og hærri hurðir og meiri notkun.
Notkunarsvið:
Dragmótorar eru yfirleitt gefnir upp fyrir viss mörg N (newton – um 1/10 af kg) en það hefur reynst frekar ónákvæmt viðmið. Hægt er að fá Liftmaster og Marantec dragmótora sem eru gefnir upp fyrir allt niður í 550N, en þeir eru ónothæfir. Yfirleitt getur maður verið öruggur um góða virkni ef keyptur er 1000N mótor fyrir bílskúrshurðir undir sirka 100kg að þyngd og 1200-1300N mótor fyrir bílskýlis- eða bílskúrshurðir allt að 150kg. Nauðsynlegt er að bílskúrshurðin virki eðlilega, sé ekki þung í opnun o.s.fv.
Takmörk og veikleikar:
Dragmótorar eru viðkvæmir fyrir tregðu í gangi hurðar og því skynsamlegt að kaupa aflmeiri mótor en framleiðendur mæla með. Strangt til tekið gætu þeir haft afl til að opna og loka, en stýring fer auðveldlega í bilunarham ef þeir mæta fyrirstöðu, jafnvel þó maður stilli t.d. leyfilegt lokunarafl í hæstu stöðu. Þar sem þeir eru í raun ekki gerðir fyrir mikla notkun, er mikið um plastvarahluti í drifbúnaðinum sem gefa sig með tímanum. Hægt er að tryggja sæmilega endingu á búnaðinum með því að kaupa mótor í yfirstærð og braut sem notar kúlulegur í stað plastfóðringa við drifhjólin.
- Kostir dragmótora
* Dregur og ýtir hurð í stað þess að snúa gormastellsöxli, sem þýðir að mótorinn setur ekki slaka á víra ef hurð skorðast föst.
* Nýrri gerðir eru með hraðastýringu, sem hlífir hurðinni með mýkri hreyfingum.
* Ólíkt öxulmótor, krefst hann ekki pláss til hliðar við hurð.
* Þarfnast aðeins 1-fasa rafmagns.
* Ódýrari en öxulmótor.
- Ókostir dragmótora
* Tiltölulega kraftlaus og því ekki hentugur fyrir þyngri / stærri hurðir. Efri mörk um 150kg fyrir aflmestu týpur, um 3m x 4m hurð.
* Þolir ekki mjög vel hnökra í gangi hurðar eða ef hún er í ójafnvægi (þung í opnun eða lokun).
* Takmörk fyrir því hve há hurð getur verið. Lengstu stöðluðu brautir leyfa um 3,5m opnun.
* Óhentugur þar sem mikil hæð er á milli efri brauta hurðar og lofts, þar sem mikill tími og efni getur farið í upphengjur.
* Ódýrari týpur eru ekki gerðar fyrir mikla notkun.
Við höldum lager af fjórum miskraftmiklum dragmótorum:
- Marantec Comfort 280 – Hámark 100kg hurðarþyngd – Heppilegur fyrir bílskúrshurðir í minni kantinum í einstaklingsskúrum
- Marantec Comfort 380 – Hámark 120kg hurðarþyngd – Heppilegur fyrir millistórar bílskúrs og bílskýlishurðir.
- Marantec Comfort 390 – Hámark 150kg hurðarþyngd – Heppilegur fyrir bílskúrs og bílskýlishurðir í stærri kantinum.
- MFZ STAI iðnaðardragmótor – Hámarks hurðarþyngd um 300kg – Heppilegur í stór bílskýli og við iðnaðarhurðir þar sem ekki hentar að nota öxulmótor. Talsverður verðmunur miðað við Marantec Comfort seríuna.
Brautir:
Hámarksopnun er ekki nákvæm og er háð aðstæðum. Taka skal lengri braut ef sú styttri er tæp að sleppa.
- SZ 11-1.2-2P braut – ~2250mm hámarksopnun.
- SZ 12-1.2-2P braut – ~2500mm hámarksopnun.
- SZ 13-1.2-2P braut – ~3250mm hámarksopnun.
Fjarstýringar:
Með Comfort 280 og 380 fylgja fjarstýringarmóttakari og 1 fjarstýring. Ekkert slíkt fylgir með Comfort 390 eða MFZ STAI, en ekkert mál er að bæta við fjarstýringarmóttakara og fjarstýringum.
Oft er hægt að endurnýta gömul fjarstýringarkerfi og nota gömlu fjarstýringarnar áfram samhliða þeim nýju. Í sumum tilvikum er fjarstýringarmóttakarinn innbyggður í gamla dragmótorinn og því ekki hægt að færa hann á milli.
Dæmi um fylgihluti:
- Digital 526 takkaborð / „talnalás“ – Sérstök fjarstýring með takkaborði. Hægt að slá inn talnarunu til að opna hurð.
- Special 630 ljósnemabúnaður / fótósellur – festar á vegg fyrir innan hurð, sín sellan hvoru megin. Hurð helst opin eða snýr við ef eitthvað birgir fyrir geislann (t.d. bíll).
- EP 163 aukakort með 1 segulliða – hægt að nota til að stýra 230VAC rás (t.d. fyrir loftljós).
Varahlutir:
Við eigum alla varahluti til á lager.
