Marantec Comfort 380 bílskúrshurðaropnari

57.646kr. m. VSK.

Marantec Comfort 380 bílskúrshurðaropnari

Lýsing

Marantec Comfort 380 bílskúrshurðaropnari

Leiðbeiningar við val á dragmótor

ATH. – Aðeins er um mótorinn sjálfan að ræða – brautir eru seldar sér. Sjá lista neðar.

Framleiðandi: Marantec Antriebs- und Steuerungstechnik GmbH

Fæðispenna: 1~230VAC

Stýrispenna: 24VDC – Fær um að veita 50mA til aukahluta.

Orkunotkun í kyrrstöðu / í keyrslu: 0,6W / 250W

Lokunar- og opnunarkraftur: 1100Nm

Lokunar- og opnunarhraði: 180mm/sek hámark.

Hraðastýring: Já.

Neyðaropnun: Útkúplun með spotta.

Hámarksfjöldi opnana á dag: 60 opnanir / dag

Þéttleiki: IP20

Hitastigsþol: –20 … + 60 °C

Fylgihlutir: Rafmagnssnúra með kló, bi-linked fjarstýringarmóttakari, 1 bi-linked fjarstýring, festingar á braut, efni í upphengjur, leiðbeiningarbæklingur.

Vörulýsing:

Comfort 380 er næstöflugasta af þremur týpum sem við eigum til á lager. Uppgefinn kraftur er 1100N (~110kg) og því haldið fram að leyfileg hámarksþyngd hurðar sé 220kg en reynslan sýnir að mótorinn verður óáreiðanlegur þegar þyngdin fer yfir sirka 120kg. Þá skal gangur hurðar vera hnökralaus og hún hvorki vera þung í opnun né lokun. Getur hentað við stærri bílskúrs- og bílskýlishurðir, svo framarlega sem notkunin er ekki of mikil. Ef einhver vafi er fyrir hendi, er skynsamlegast að velja aflmeiri týpu.

Að því sögðu þá er þetta vandaður búnaður sem býður upp á mikla tengi- og stillimöguleika miðað við flesta aðra dragmótora / bílskúrshurðaropnara. Stunginn fjarstýringarmóttakari fylgir ásamt einni fjarstýringu.

Hefur einnig verið seldur undir heitinu High-Line 15.

Aðvörun:

Uppsetningaraðili þarf sjálfur að meta hvort þessi mótor er nægilega aflmikill fyrir viðkomandi verkefni og Hurð ehf. tekur enga ábyrgð á vandamálum sem hljótast af því að nota opnarann utan ráðlags notkunarsviðs.

Handbók / leiðbeiningar:

Marantec Comfort 360-370-380 bílskúrshurðaropnari handbók

Brautir:

SZ 11-1.2-2P braut fyrir bílskúrshurðaropnara – 2250mm hámarksopnun.

SZ 12-1.2-2P braut fyrir bílskúrshurðaropnara – 2500mm hámarksopnun.

SZ 13-1.2-2P braut fyrir bílskúrshurðaropnara – 3250mm hámarksopnun.

Aðrir mótorar:

Marantec Comfort 280 bílskúrshurðaropnari

Marantec Comfort 390 bílskúrshurðaropnari

Öryggisbúnaður, fjarstýringarmóttakarar og annar aukabúnaður:

433MHz Multi-Bit fjarstýringarmóttakari, stunginn

433MHz Multi-Bit fjarstýringarmóttakari, stunginn, með loftneti

868MHz Multi-Bit fjarstýringarmóttakari, stunginn

868MHz Multi-Bit fjarstýringarmóttakari, stunginn, með loftneti

Marantec Special 630 ljósnemabúnaður / fótósellur

Frekari upplýsingar

Þyngd 6,6 kg
Framleiðandi

Upplýsingarblöð

https://www.hurd.is/wp-content/uploads/2022/03/Marantec_Comfort260-270-280-bilskurshurdaropnari_handbok.pdf

Þér gæti einnig líkað við…