Iðnaðarhurðir

Iðnaðarhurðir

Hurð ehf. selur, setur upp og þjónustar iðnaðarhurðir.

Sala iðnaðarhurða

Við sölu er áhersla lögð á rétt efnisval hverju sinni og notkun á stöðluðum varahlutum, svo viðskiptavinur geti auðveldlega útvegað sér varahluti frá mörgum aðilum um ókomna tíð.

Í stuttu máli sagt er okkur kleift að verða við flestum séróskum hvað varðar virkni, útfærslu og útlit hurða.

Vörulisti framleiðanda

Uppsetning  og viðhald iðnaðarhurða


Við uppsetningu er lögð áhersla á að vanda til verka til að fá hámarksendingu á hurðum. Reynslan hefur kennt okkur að léleg uppsetning getur helmingað endingu eða meira.

Við viðhald er lögð áhersla á a bregðast fljótt við og lagfæra búnaðinn varanlega, sama hvort um að ræða tjón eða slit. Oft felur það í sér leiðréttingu á óvandaðri uppsetningu. 

Við höfum góðan lager af varahlutum og aðgang að birgjum til að útvega í flestar tegundir hurða, óháð framleiðanda eða útfærslu.

Tegundir iðnaðarhurða

Hefðbundnar flekahurðir
– Algengasta gerðin í iðnaðarhúsnæði á Íslandi. Uppbyggð af sirka 50-60cm háum flekum sem festir eru saman með lömum, og renna upp eftir lóðréttum brautum sem festast sitthvoru megin við opið. Gott einangrunargildi og vindþol en þær eru heldur hæggengar. 

Flekahraðhurðir 
Svipaðar og þær hefðbundnu, en sérútbúnar til að ganga mun hraðar. Lægri flekar (~20cm), fleiri hjól í brautum, vandaðri íhlutir og hraðgengur öxulmótor með tíðnibreyti eru helstu eiginleikar sem eru frábrugðnir.

Hraðhurðir
 Yfirleitt búnar til úr PVC-dúk sem rúllast utan um tromlu eða hífist upp þegar hún er opnuð. Hægt að fá fyrir allskyns aðstæður eins og kæli- og frystirými, hreinrými, matvælarými, verslanir og fleira. Sumar útfærslur þola veður og vind á Íslandi.

Rúlluhurðir
Rúllast utan um tromlu sem er beint fyrir ofan hurðina. Ekki svo algengar á Íslandi, en hafa sitt hlutverk í aðstæðum þar sem ekki er pláss að ofanverðu fyrir framan hurð.

Vængjahurðir / harmonikkuhurðir
Iðnaðarhurðir sem uppbyggðar eru úr nokkrum flekaeiningum sem opnast til hliðar og falla saman upp að vegg. Algengar á árum áður og oft smíðaðar hérlendis af blikksmiðjum, en einnig fluttar inn og jafnvel mótorvæddar í sumum tilvikum.

Eldvarnarhurðir 
Iðnaðarhurðir úr eldtefjandi efni. Geta verið eins og flekahurðir, rúlluhurðir eða dúkhurðir. Framleiddar og prófaðar fyrir mismunandi einangrunarflokka (EI30, EI60, EI90 o.s.fv.) og yfirleitt stilltar til að loka sjálfkrafa við brunaboð.

Aðrar iðnaðarhurðir
Þar að auki er til fjöldinn allur af öðrum tegundum hurða sem eru misútbreiddar hér á landi. S.s. flugskýlishurðir, heilflekahurðir (guillotine) o.fl. Við höfum komið nálægt þeim flestum.

 

Hafa samband

Varðandi viðhald, hafið samband við hurd@hurd.is eða 5654693.

Varðandi sölu og ráðgjöf, hafið samband við pantanir@hurd.is.