Hurð ehf. þjónustar fyrirtæki og stofnanir — ekki einstaklinga. Þetta á þó ekki við um sölu á varahlutum.
Hurð ehf. starfar í Reykjavík og sinnir viðgerðum, viðhaldi og innflutningi á varahlutum fyrir iðnaðarhurðir og tengdan búnað.
Hvað þjónustum við?
Iðnaðarhurðir í öllum sínum myndum –
Flekahurðir, hraðhurðir, rúlluhurðir, vængjahurðir, eldvarnarhurðir o.s.fv. Getum sinnt viðhaldi og útvegað varahluti fyrir flestar gerðir hurða, m.a.:
Loading Systems, Nassau, Crawford, Assa Abloy, Toors, Raynor, Hörmann, ConDoor / Hardeman, Novoferm o.fl.
Hleðslubrýr og lestunarbúnaður
Hleðslubrýr, veðurhlífar, vörulyftur (skæralyftur), gámasliskjur og annan lestunar- og hleðslubúnað tengdan vöruflutningum.
Fjarstýringar og aðgangsstýring
Fjarstýringarkerfi og GSM-innhringibúnað til aðgangsstýringar.
Bómu- og rennihlið
Bómu- og rennihlið að lóðum eða landsvæðum — s.s. bílastæðum, iðnaðarlóðum, tjaldsvæðum og sumarbústaðalöndum.
Útkallsþjónusta
Við bjóðum útkallsþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni. Bilaðar hurðir stöðva eða trufla rekstur — markmiðið er að bregðast við eins fljótt og mögulegt er.
– Skjót viðbrögð við bilun
– Reyndir tæknimenn
– Varahlutir á lager fyrir algengar gerðir
Reglulegt viðhald
Fyrirbyggjandi viðhald lengir endingu búnaðar verulega og kemur í veg fyrir óvæntar bilanir. Við getum boðið upp á reglulegt viðhald, hvort sem það er eftir pöntunum eða samkvæmt þjónustusamningi.
Varahlutir
Við höfum góðan lager af varahlutum og aðgang að birgjum til að útvega hluti í flestar tegundir hurða og búnaðar.
Hafa samband
Sími: 5654693
hurd@hurd.is
