Orða- og hugtakasafn
Orðasafn yfir hugtök sem tengjast iðnaðar- og bílskúrshurðum, á íslensku og ensku. Í vinnslu – færslum bætt inn þegar tími gefst.
Astra (íslenskt fyrirtæki) – Íslenskur innflutnings- og þjónustuaðili fyrir ýmsan búnað tengdan iðnaðar- og bílskúrshurðum – m.a. Genie Screw Drive, Osco og Loading Systems. Starfaði aðallega á 9. og 10. áratugnum en leið undir lok stuttu eftir aldamótin og Sindrastál tók við hluta af umboðum.
Endalöm (einnig hliðarlöm) – e. side hinge – löm sem festist við enda hurðarfleka og þjónar annarsvegar því hlutverki að tengja flekana saman og hinsvegar að vera hjólafesting. Öxli nælonhjóls er stungið í hjólhaldara og haldarinn svo boltaður við endalömina.
Fallbremsa – e. cable break device – sérstakar vírfestingar sem bremsa hurðina af og koma í veg fyrir að hún falli niður ef burðarvírar slitna.
Fleki (einnig hurðarfleki) – e. panel, section – Hvert og eitt stykki sem staflað er saman í hurðarop til að mynda svokallaða flekahurð / iðnaðarhurð. Algeng hæð fleka er milli 500-600mm og þykkt milli 40-80mm. Þeir eru svo sagaðir í rétta lengd til að spana breidd hurðaropsins.
Flexiforce (fyrirtæki) – Hollenskur framleiðandi iðnaðarhurðavarahluta. Er í dag í eigu Assa Abloy samsteypunnar.
Gormabrotsbremsa – e. spring break device – Gormabrotsbremsa er sérstök leguplata / burðarplata sem fasti endi jafnvægisgorms boltast við. Ef jafnvægisgormur brotnar, virkjast bremsan og kemur í veg fyrir að hurð geti fallið niður.
Gormastell – e. shaft assembly – samstæða öxuls, jafnvægisgorma, vírhjóla, leguplatna og annarra fylgihluta.
Gormsnúra – e. spiral cable – gormundin snúra sem notuð er til að tengja öryggisbúnað á hurð við stjórnbúnað hennar. Snúran lengist og dregst saman án þess að tapa formi sínu og leyfir því hreyfingu án þess að skemmast.
High-Lift (HL) – útfærsla á hurðarbrautum, nánar tiltekið efri brautum og beygjum. Notuð þegar lofthæð er meira en 500mm hærri en hæð hurðarops, en þó ekki næg til þess að hurð geti fullopnast án þess að beygja inn í hús. Efsti fleki lyftist þá lóðrétt upp áður en hann fer inn í aflíðandi beygju. Einnig notað sem lýsingarorð fyrir varahluti og eiginleika hurðar sem notar slíkar brautir – s.s. High-Lift vírhjól o.s.fv.
Hjólhaldari – e. roller slide, roller bracket – haldari sem notaður er til að festa nælonhjól við fleka hurðar. „Slide“ á við stillanlegan haldara sem boltast á endalamir og topphjólafestingar. „Bracket“ á við óstillanlega festingu sem skrúfast beint á fleka.
Jafnvægisgormur – e. torsion spring – Jafnvægisgormar þjóna því hlutverki að lyfta iðnaðarhurðinni. Gormarnir eru trekktir visst marga hringi, þar til uppsafnaður snúningskraftur þeirra er nægilegur til að vægja á móti þyngd hurðar.
Loftrofi – e. air wave switch – rafmagnsrofi sem virkjast þegar loftþrýstingur byggist upp inni í honum. Notaður sem öryggisbúnaður við iðnaðarhurðir. Loftrofi er tengdur með loftslöngu við botnþéttingu hurðar og virkjast þar af leiðandi ef hurðin lokast ofan á fyrirstöðu.
Low Head Room (LHR) – einnig þekkt sem Low-Lift (LL) – útfærsla á hurðarbrautum, nánar tiltekið efri brautum og beygjum. Notuð þegar lofthæð er takmörkuð. Efsti fleki fer þá í krappa beygju og færist strax frá vegg þegar opnað er, í stað þess að lyftast upp áður en hann beygir frá vegg. Einnig notað sem lýsingarorð fyrir varahluti og eiginleika hurðar sem notar slíkar brautir – s.s. LHR topphjólafestingar, beygjur o.s.fv. Einnig þekkt sem Low-Lift (LL).
Normal-Lift (NL) – útfærsla á hurðarbrautum, nánar tiltekið efri brautum og beygjum. Notuð þegar lofthæð er um 400-500mm meiri en hæð hurðarops. Efsti fleki fer þá strax í aflíðandi beygju út frá vegg. Einnig notað sem lýsingarorð fyrir varahluti og eiginleika hurðar sem notar slíkar brautir – s.s. Normal-Lift vírhjól o.s.fv. Einnig þekkt sem SL (Standard-Lift).
Nm (Nmm) – Newton metri (millimetri) – e. newton metre (millimetre) – Notað m.a. við útreikninga á jafnvægisgormum. Mælieining sem gefur til kynna snúningskraft sem myndast þegar 1 newtons krafti er beitt á enda 1m langs átaksarms. Í stuttu máli sagt er 1 newton um 0,102 kg og 1kg er um 9,8 newton.
Marantec (fyrirtæki) – Framleiðandi öxul- og dragmótora ásamt ýmsum öðrum aukahlutum fyrir iðnaðarhurðir og tengdan búnað. Upphaflega hluti af fyrirtækinu Hörmann en var aðskilið árið 1989 vegna fjölskylduerja. Keypti síðar MFZ Antriebe GmbH og Ovitor Oy, hvort tveggja framleiðendur öxulmótora og hurðarstjórnbúnaðar.
MFZ Antriebe GmbH (fyrirtæki) – Þýskur framleiðandi öxulmótora og annarra aukahluta fyrir iðnaðarhurðir. Rann síðar saman við finnska fyrirtækið Ovitor Oy og hét um tímabil MFZOvitor. Nú einfaldlega deild innan Marantec.
Ovitor Oy (fyrirtæki) – Finnskur framleiðandi öxulmótora og annarra aukahluta fyrir iðnaðarhurðir. Rann síðar saman við þýska fyrirtækið MFZ Antriebe GmbH og hét um tímabil MFZOvitor. Nú einfaldlega deild innan Marantec.
Sindrastál hf (íslenskt fyrirtæki) – Stofnað 1949 og sinnti m.a. innflutningi og sölu á smíðastáli. Tók við umboðum Astra ehf. í kring um aldarmótin 2000, en þar er helst að nefna Loading Systems í Hollandi sem framleiða hleðslubrýr og selja iðnaðarhurðir. Efnissalan var lögð niður árið 2007 en hurðadeildin flutt yfir í Áltak, sem í dag (2023) er hluti af Fagkaup samsteypunni.
Trekkistöng – e. torsion bar – Átaksskaft sem notað er til að trekkja / snúa upp á jafnvægisgorma.
Trissuhjól – e. cable pulley – Vírhjól sem notað er til að breyta stefnu burðarvírs við iðnaðarhurð. Oftast notað við bílskýlishurðir þar sem lágt er til lofts og ekki er pláss fyrir gormastell fyrir ofan hurðarop. Þá er vírinn tekinn úr vírfestingu, upp í trissuhjól og svo 90° út frá vegg og í vírhjól á gormastelli sem staðsett er á enda efri brauta.
Vertical-Lift (VL) – útfærsla á hurðarbrautum, nánar tiltekið efri hluta brauta. Notuð þegar lofthæð er næg til þess að hurð geti fullopnast án þess að beygja inn í hús (þ.e.a.s. lóðrétt opnun). Einnig notað sem lýsingarorð fyrir varahluti og eiginleika hurðar sem notar slíkar brautir – s.s. Vertical-Lift vírhjól o.s.fv.
Vírfesting – e. bottom bracket – Festingar sem skrúfast á neðri horn neðsta flekans og burðarvírar hurðar festast í.
Vírhjól (einnig vírtromlur) – e. wire drums, cable drums – hjól eða tromlur sem staðsettar eru á endum gormastellsöxla og burðarvírar hurðarinnar festast í og vindast upp á. Yfirleitt búin til úr steyptu áli.
Vírslakarofi – e. cable slack switch – rafmagnsrofi sem virkjast þegar slaki kemur á burðarvíra hurðar. Notaður sem öryggisbúnaður við iðnaðarhurðir. Ýmist útfærður sem stöðurofi með armi sem staðsettur er við vírhjól, eða sem míkrórofi sem staðsettur er við fallbremsu / vírfestingu.
