Lýsing
CS320 hurðarstjórnbúnaður
CS320 er sá hurðarstjórnbúnaður sem næst því kemst að vera alhæfur (e. universal). Fyrir utan að koma í stað CS300 og CS310 frá sama framleiðanda, er hægt að aðlaga hann að alflestum mótorum sem notaðir eru við iðnaðarhurðir á Íslandi. Stillingar- og tengingarmöguleikar eru mjög góðir. Hægt að nota bæði með mekanískum (míkrórofar og knastar) og stafrænum (snúningsteljari) endastoppum. Hægt að nota innbyggðan mótorliða til að svissa mótor eða keyra hann með Siemens SINAMICS tíðnibreyti (fylgir ekki).
Aðlögun að eldri hurðarmótorum –
CS310/320 hefur verið notaður við öxulmótora frá NICE / MTEC / Loading Systems, MFZ / Marantec / Ovitor / Pro-Line System, Nassau, Crawford, Novoferm, GFA Elektromaten / Beditom, Hörmann, Nergeco, Ovitor, Becker / Lindab, Dalmatic / Flexiforce o.fl. – Í sumum tilvikum er þörf á því að endurnýja snúningsteljara (GFA, Hörmann, NICE / MTEC) og í öðrum þarf að gera smávægilegar breytingar á víringu á knastaendastoppum (t.d. Crawford, GFA). Við getum í sumum tilvikum leiðbeint viðskiptavinum við endurnýjun.
Framleiðandi: Marantec (einnig selt undir heitunum MFZ Antriebe / Ovitor / Pro-Line System / Nassau / Loading Systems o.fl.)
Stillingar: 3-hnappa LCD skjár er notaður til að breyta stillingum og lesa út ýmsar upplýsingar.
Tengingar: Möguleiki á tengingu ýmiss aukabúnaðar. 4 stillanlegir segulliðar (3x10A, 1x16A), 2 stillanlegir inngangar. Þar að auki tengi fyrir allan hefðbundinn öryggisbúnað, aukahnappa, fjarstýringarmóttakara o.s.fv.
Stjórnkassi: Nettur plastkassi með 4 hreyfanlegum festingum. 3 losanlegir kapalnipplar fylgja og slatti af M16 og M20 götum neðan á boxi þar að auki. Hægt að breyta opnunarátt á loki (hægri, vinstri og upp). Mjúkir, upplýstir plasttakkar framan á boxi (opna, stoppa, loka).
Spenna: Fæðispenna stillanleg milli 230 eða 400VAC. Stýrirás virkar að mestu á 24VDC. 12VDC notuð fyrir snúningsteljara og öryggisbúnað.
Straumur: 10A gleröryggi á fösum. Mótorliði þolir að svissa um 2,2kW mótor og möguleiki á að tengja utanáliggjandi liða. Stjórnbúnaður er fær um að veita 500mA @ 24VDC að aukabúnaði og er sá útgangur varinn af sjálfendurræsandi 500mA vari (polyfuse).
Fylgihlutir: 3-fasa 16A kló m. sirka 1m kapli, kapalnipplar, skrúfupakki og handbók.
Þéttleiki: IP65.
Hitastigsþol: –10 … + 45 °C
Mál / stærð: 215 x 275 x 190 mm (breidd x hæð x dýpt)
Þyngd: 1,8kg
Handbók / leiðbeiningar:
Marantec CS320 hurðarstjórnbúnaður – handbók (enska)
Marantec CS320FU hurðarstjórnbúnaður með tíðnibreyti – handbók (enska)













